Djöfull varð ég pirraður á mánudaginn, sat í marga klukkutíma að reyna að kaupa mér miða á U2 tónleika á Parken í sumar en ekkert gekk.
Heimasíðan sagði mér að ég væri í röð og var ég númer hitt og þetta í röðinni, eina stundina 200 aðra 7000 og svo 39 o.s.frv. Komst líka þrisvar í gegn en náði aldrei að klára færsluna áður en kerfið hrundi.
Ónýtir forritarar sem smíðuðu þetta apparat, síminn virkaði heldur ekki og sölukerfið í búðunum var líka í lamasessi.
Ef einhver á aukamiða þá hef ég áhuga á að kaupa, þó ekki á hvaða verði sem er.
Þekki einnig fleiri sem hafa áhuga.
Svo voru kosningar í DK í gær, ótrúlegt hvað þeir eru fljótir að telja. Byrjðu um 8 leytið og búinir 11. Venstre sem er til hægri telst sigurvegari þó mín tölfræði segi að Radikal Venstre sem er til vinstri hafi unnið. Þeir bættu allavega mestu við sig.
Annars finnst mér danskt kosningasjónvarp ekki eins skemmtilegt og heima.