Tilraunasíða Rúnars
Sá í Mogganum að gamli dönskukennarinn minn frá Laugum er dáinn. Pálmi Guðmundsson hét hann kappinn, mjög skemmtilegur náungi sem náði reyndar ekki að koma dönskunni með góðu móti í mig þó ég tali hana núna.
Það er góður maður borinn til grafar á Akranesi nú kl 10:30 að íslenskum tíma.
Fékk skrýtið símtal áðan.
Gamall vinnufélagi úr Pennanum hringdi í mig, hef ekki heyrt í honum í nokkur ár. Málið var að hann hafði verið í körfubolta í gær með vinum sínum og upp komið árgreiningur og því var hringt í eina dómarann sem hann þekkti til að fá niðurstöðu!!!
Alltaf gaman að fá óvænt símtöl.
"There are 10 types of people in the world... those who understand binary and those who don't" quote bash.org
Las grein í Mogganum í morgun eftir formann nemendafélags MA þar sem hún er að láta RÚV heyra það vegna Gettu betur.
Rifjar upp fyrir mér árið sem ég útskrifaðist frá Laugum, 1995. En þá fóru einmitt allir landsbyggðarskólarnir í verkfall frá Gettu betur vegna þess að allar keppnir fóru fram í Reykjavík og það var dýrt fyrir landsbyggðarskólana að koma sér á staðinn og miklar fjarvistir frá námi.
Veturinn eftir var öllu fögru lofað og einhverjar keppnir voru teknar upp úti á landi, nú ert þetta greinilega horfið í fyrra horf og allar keppnir í Rvík og landsbyggðarskólarnir orðnir ósáttir.