Tilraunasíða Rúnars
Mér finnst það alltaf jafn skondið þegar fréttalesarar eru að lesa fréttir um efni sem þeir vita ekkert um.
Nú í morgun var Linda Blöndal að lesa fréttir á
RÚV og þar var meðal annars frétt um Frank Rijkaard og hún las nafn hans (lesist með íslenskum framburði) Frank Ríkard. Seinna í sama fréttatíma var hún að lesa úrslitin úr enska boltanum í gær þar sem áttust við Man City og Middlesborough. Linda sagði "Manchester, nei Man City og Middlesborough áttust við"
Er enginn að finna skeggjaðan sjálfstæðismann, frétti að forseti bæjarstjórnar Garðabæjar hafi verið spurður að þessu í gær og hann gat ekki fundið neinn.
Mogginn var að skrifa í morgun um frammistöðu körfuboltamanna á Íslandi út frá jöfnu sem ættuð er úr
NBA deildinni og á að meta leikmenn út frá tölfræði þeirra.
Þessi tala hefur verið reiknuð í
Leikvarpi KKÍ síðan það fæddist sem ég man nú ekki nákvæmlega hvenær var. En það var
Gunnar Freyr Steinsson sem bjó það til, sem og orðið Leikvarp. Og í greininni í Mogganum í morgun var talað um Leikvarp.
Ég var svo að ræða þetta við Gunna Frey á msn í dag og þá átti hann þetta gullkorn.
"ég horfði á þetta, og hugsaði með mér að svona hefði guðna kolbeinssyni liðið þegar hann sá orðið "stoðsending" fyrst á prenti "
Var að spjalla við pabba um daginn og hann hafði heyrt einhverja umræðu um skeggjaða þingmenn og að það væri mikið algengara að vinstri sinnaðir þingmenn væru skeggjaðir og það finndist varla þingmaður Sjálfstæðismann með skegg.
Ég er búinn að vera að hugsa þetta og jú, Hjálmar Jónsson var með eitthvað skegg. Guðjón Arnar var varaþingmaður þeirra og er með eitthvað smá skegg.
En svo ef maður fer í VG þá er formaðurinn með skegg, Jón Bjarnason, Ögmundur Jónasson og af gömlum Alþýðubandalagsmönnum, t.d. Svavar Gestsson, Hjörleifur Guttormsson og ég gæti haldið áfram.
Ef einhver getur nefnt Sjálfstæðismenn sem hafa setið á þingi og eru skeggjaðir þá eru þeir beðnir að setja það í comment.
Var að lesa blogg
Róberts Marshall þar sem hann segir frá því þegar hann fyrrverandi fréttamaðurinn og yfirmaður NFS mætti í Silfur Egils og hitti fyrrverandi samstarfsmenn, þ.á.m. Eyþór Árnason sviðsstjóri.
"Hitti marga gamla vinnufélaga þegar ég kom við á NFS í dag þegar ég mætti í Silfur Egils. Eyþór sviðstjóri er einn þeirra. Eyþór er stofnun í íslensku sjónvarpi. Hann hefur það fyrir sið að klappa manni á axlir þegar hann er búinn að tengja í mann hljóðnema og eyra. Afskaplega ljúfur og góður maður sem starfsfólk ÍÚ, Norðurljósa, 365 hefur átt hvert bein í síðustu árin. Hann var kjörinn starfsmaður ársins á árshátíð fyrir nokkrum árum þegar ákveðið var að kjósa ávallt starfsmann ársins. Held að siðurinn hafi lagst af eftir þessa fyrstu tilnefningu. Fólk var alltaf að leita að einhverjum jafngóðum Eyþóri en hann fannst ekki þrátt fyrir þennan fjölda úrvalsfólks. Mundi þetta þegar hann klappaði mér á axlirnar í dag. Útsendingarstressið hvarf eins og dögg og ég mundi að ég ætla að hafa gaman af þessum slag. Gott að hitta þetta fólk. "
Gaman að menn vekja athygli á mönnunum sem halda öllu dæminu saman. Ég man þegar ég var einu sinni viðstaddur upptöku á Viltu vinna milljón. Maður hélt að Þorsteinn Joð væri sæi um þetta allta þarna, en öðru nær. Hann var bara í aukahlutverki. Eyþór var þarna aðalkallinn í að þetta gengi, reyndar með Þór Freyssyni. En Eyþór er einn af örfáum starfsmönnum NFS/Stöðvar 2 og hvað þetta hefur heitið sem hefur lifað af maaaarga niðurskurði og það skil ég vel. Eðal maður, enda Skagfirðingur.
Held ég hafi verið fjögurra ára þegar Eyþór var að kenna í Varmahlíð og ég var eitthvað að þvælast með pabba og mömmu í Miðgarði og leiddist, Eyþór reddaði því, bauð mér bara að vera með í tíma í skólanum. Má segja að ég hafi byrjað fjögurra ára í skóla, reyndar bara einn dag. Það var svo sem ekki mikið meira í sex ára bekk, 1 dag í viku.
Var að lesa Morgunblað dagsins og þar er frétt af hraðakstri ungs manns, hann var tekinn á 125 km hraða við Rauðavatn og er þetta í fjórða skipti sem hann er tekinn fyrir ofhraðan akstur. Svo stendur í Mogganum;
"Lögregla ræddi
við móður piltsins af þessu tilefni en
hún hafði ekkert við háttalag sonar
síns að athuga og sagðist treysta honum
fullkomlega til þess að aka bifreið."
Hvað er að í þessum heimi?
Er þetta ekki enn eitt dæmið sem sýnir að agavandamálið sem er á Íslandi á upptök sín hjá foreldrum?
Reyndar var ein húsvísk mamma í fréttunum í sumar sem lét taka bílinn af syni sínum sem keyrði of hratt.
Ætti maður að skrifa eitthvað hér?
Já maður verður að vera eins og allir hinir Íslendingarnir í Danmörku, skrifa um útkomu
Nyhedsavisen í morgun.
Ég bý reyndar ekki nógu nálægt miðbæ til að fá blaðið í póstkassann, en komst yfir það í vinnunni og verð að segja að þetta lítur ágætlega út. Vakti athygli mína að aðeins 2 auglýsingar tilheyra "íslenskum" fyrirtækjum,
Sterling og
B&O.
Ég fór líka og kíkti á heimasíðu þeirra, þar er hægt að skoða blaðið ef menn vilja og einnig blogg hjá allmörgum blaðamönnum blaðsins.
Það skal reyndar tekið fram að ég fæ ekki hin fríblöðin í póstkassann, nema jú
24timer kemur einu sinni í viku. Ég kann ágætlega við það blað, mikil rannsóknarblaðamennska en ég hef mjög gaman af slíkri blaðamennsku. Hana sárvantar á Íslandi.
Heyrði svo viðtal við Gunnar Smára á Rás2 rétt í þessu vegna frétta um að danskur hagfræðingur hafi sagt að þetta dæmi geti ekki gengið upp fjárhagslega. Verð að segja að mér finnst að æðsti maður fjölmiðils verði að kunna að bera fram nafn síns fjölmiðils síns. Hann sagði hvað eftir annað í viðtalinu, Níheddsavísen, en á dönsku er nafnið Nyhedsavisen borið fram Nuheðsavísen. Þetta er svipað og ef það væru danskir eigendur að DV sem myndu kalla blaðið deví
Annars góður