Þegar Danir ferðast til Evrópu í hópum, t.d. í skíðaferðir þá er venjan að keyra í rútu. Oft eru þetta langar ferðir og þá er keyrt í einni bunu kannski 24 tíma og fólk sefur bara í rútunum. Svefnrútur, þar sem hægt er að leggja sætin niður og sofa.
Skari svali kannast vel við þetta enda farið einhverjar ferðir svona. Slys í svona ferðum er algeng og margir dáið í slíkum slysum eftir að ég flutti til DK. Oftast verða slysin á hraðbrautum í Þýskalandi enda mikill hraði á bílum þar og það fer ekki vel saman við hálku. Einnig er þetta þannig að það eru tveir bílstjórar sem skiptast á að keyra og hinn á að sofa á meðan, en eitthvað virðist vanta upp á að menn leggi sig.
Nú er svo komið að Þjóðverjar hafa sett lög sem banna svefnrútur, þ.e.a.s. ef öryggisbeltin virka ekki bæði þegar fólk liggur og situr. En þeir leyfa rútur sem eru ekki með beltum!!!!
Magnaðir þessir Þjóðverjar.
Ég var annars að dæma minn annan leik í dönsku úrvalsdeildinni í gær. Minn annar leikur á heimavelli Randers. Í fyrsta leiknum vakti einn kani heimamanna athygli mína og fannst mér hann minna mig á einhvern, datt helst í hug einhver leikmaður
Harlem Globtrotters. En í gær fattaði ég það, hann er fyrirmynd
Shrek, þéttur, hokinn og með svakalega hnakkaspik.