Ég skildi ekkert hvað var að gerast þegar ég mætti í leik í Christiansbjerghallen í gær, var að fara að dæma 1. deild kvenna klukkan 19 á laugardegi. Ekki beint uppáhaldstíminn minn.
Þegar ég kom að inngangnum var flaggað danska og íslenska fánanum fyrir utan, og andyrið fullt af fólki. Ég var að spá í hvort þeir hefðu auglýst að ég væri að koma eða eitthvað.
Þegar ég kom svo inn áttaði ég mig á hvað var að gerast, Christiansbjerghallen er með sama inngang og Skautahöllin og það var
Ístöltkeppni að byrja þar. Danirnir vildu endilega senda mig inn og sýna tölt, ég tók bara smá rispu á körfuboltavellinum fyrir þá.