Í mínum villtustu draumum hefði þetta aldrei gerst. Þau tvö lið sem mér þykir hvað leiðinlegust í ensku deildinni, Man Utd og Arsenal eru dottin úr Meistaradeildinni en mitt lið, Liverpool og lið allra Íslendinga, Chelsea, komin áfram. Þetta er bara yndislegt.
Skil reyndar ekki val danskra sjónvarpsstöðva á leik á þriðjudaginn, völdu Milan - Man Utd til að sýna beint og svo var Barcelona - Chelsea sýndur á eftir.
Undanfarið hafa sterkir vindar blásið um danska ráðherra, 2 konur hafa lent í því að eiginmenn þeirra hafa verið í einhverju peningabulli. Þetta fólk er hengt í blöðum og önnur þeirra varð að segja af sér en hin fékk stuðning forsætisráðherra. Forsætisráðherra setti reyndar reglur um að fjármál ráðherra er gert opinbert á heimasíðu forsætisráðuneytisins. Þá gerðist það að einn makinn neitaði að gefa upplýsingar og nú er Anders Fogh í erfiðum málum, verður hann að segja ráðherranum upp eða hvað?
Ég hef verið að hugsa um hvað myndi gerast heima ef svona mál kæmu upp, eða eru kannski svona mál í gangi en þau koma bara ekki upp á yfirborðið? Árni Johnsen varð reyndar að segja af sér þingmennsku en hafði það nú bara gott á meðan hann var á Kvíabryggju og hefur nóg að gera í dag. Ég hugsa að hann myndi fljúga inn á þing ef hann hefði áhuga.
Nú er maður búinn að búa í DK í 1 og hálft ár og fær alltaf betri og betri samanburð á löndunum. Eitt sem ég hef mikið velt fyrir mér undanfarið er að Ísland muns enda 5 yngri landslið til leiks í Evrópukeppni í sumar en Danir ekkert. Mér finnst þetta ekki sterkur leikur hjá Dönum. Menn verða að spila við sér sterkari aðila til að verða betri, Danir verða ekki betri á að spila bara við sjálfan sig alla daga. Þeir mæta þó á NM yngri landsliða í Svíþjóð, þar hafa Íslendingar þrjá titla að verja en Danir engan. Held að meiri líkur séu á að Íslendingar verji titil en að Danir vinni einhvern.