Bandaríkjamenn er bara ruglaðir, ég sé það alltaf betur og betur. Las
frétt af því í Mogganum að þeir ritskoðuðu texta Rolling Stones í SuperBowl leiknum.
Klikkað fólk.
Svo það að kalla allt heimsmeistaratitil ef einhver vinnur landskeppni þeirra, sleppur kannski í AMERÍSKUM fótbolta, en ekki körfubolta eins og NBA meistarar eru stundum titlaðir.
En aftur af fréttinni í Mogganum, sá snillingur sem þýddi greinina hefur greinilega ekki alveg verið að hugsa. Hann skrifar að ABC sjónvarpsstöðin hafi sýnt leikinn með 5 sekúndna FORSKOTI. Held að einhverjir tipparar hefðu viljað sjá það og getað séð fram í tímann.
Hér er væntanlega átt við 5 sekúndna seinkun.